Mikið var að þetta sé að koma

já þetta gerir það að verkum að við fáum lengri sumur hér á íslandi - drífa í þessu sem fyrst
mbl.is Vilja seinka klukkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta gerir það að verkum að þeir sem vinna á sumrin hafa minni sól þegar þeir koma heim á daginn, sé ekki alveg hagræðinguna í því.

Björn (IP-tala skráð) 14.12.2010 kl. 12:56

2 identicon

Hvernig getur sumarið orðið lengra við þetta? Þetta skiptir ekki neinu einasta máli nema dimmustu vetrarmánuðina en þá birtir klukkutíma fyrr en að sama skapi dimmir líka klukkutíma fyrr síðdegis. Yfir sumarið er bjart allan sólarhringinn og frá því endaðan mars og fram í október er bjart snemma á morgnana. Það er því engin ástæða til að hræra neitt í klukkunni.

Guðmundur (IP-tala skráð) 14.12.2010 kl. 12:57

3 Smámynd: Sigurjón

Þetta þýðir að ég hef klukkutíma styttra til að njóta sólarinnar síðdegis á sumrin.  Húmbúkk!

Sigurjón, 14.12.2010 kl. 14:05

4 identicon

Mér finnst nú mest um vert að með þessu þá fáum við ca. tvo mánuði á ári sem við vöknum í björtu.

Fyrir þá sem stunda vinnu utandyra er þetta mikið hagsmunamál. Það er allt annað að koma að vinnustað í björtu en í myrki. Þó það byrji að dimma fyrr á daginn þá skiptir það minna máli, vinnan er þá í fullum gangi og myrkrið veldur þá ekki töfum. Að byrja daginn með því að vinna út í myrkri er miklu verra mál.

Loks verið að gera eitthvað jákvætt og stíga framfaraskref á Alþingi.

Pési (IP-tala skráð) 14.12.2010 kl. 15:43

5 Smámynd: Sigurjón

Það eru bara margfalt færri sem vinna úti, þannig að þetta er mikill minnihluti sem fær eitthvað út úr þessu.  Ég er alla vega á því að það er betra að eiga birtuna eftir þegar maður kemur heim, heldur en að eyða birtunni meðan maður er að vinna inni í ljósi.

Sigurjón, 15.12.2010 kl. 11:11

6 identicon

Ef þessi tillaga verður að veruleika þýðir þetta að það mun dimma fyrr á kvöldin og einnig yfir sumartímann, þannig að það er virkilega vandséð hvernig sumarið mun lengjast við þetta.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 15.12.2010 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband